17.8.2010
Vetrarfrístund (6-9 ára börn)
Nú er síðasta vika sumarfrístunda hafin.
Vetrarfrístund hefst svo næstkomandi þriðjudag, 24. ágúst.
Verið er að vinna í innra skipulagi og starfsmannaráðningum fyrir komandi vetur.
Ánægjulegt er að segja frá því að um 700 umsóknir hafa borist á frístundaheimili Kringlumýrar fyrir komandi vetur.
Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að samþykkja umsóknir samhliða því sem starfsmenn eru ráðnir til starfa.
Frístundaheimilin í okkar hverfi eru:
Álftabær við Álftamýraskóla (Linda, GSM: 664-7611)
Sólbúar við Breiðagerðisskóla (Valdi, GSM: 664-7612)
Neðstaland við Fossvogsskóla (Fríða Björk, GSM: 664-7613)
Krakkakot við Hvassaleitisskóla (Biddý, GSM: 664-7670)
Glaðheimar við Langholtsskóla (Mýa, GSM: 664-7617)
Lagarsel við Laugarnesskóla (Kristín, GSM 664-7618 & Sædís, GSM: 664-7655)
Vogasel við Vogaskóla (Rakel, GSM: 664-7619)
Sé frekari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra viðkomandi frístundaheimilis eða deildarstjóra barnasviðs.
Með kærri kveðju
Inga Björk
Deildastjóri barnasviðs
7.7.2010
Myndir frá Óvissuviku
Myndir af ferðinni í Tilraunaland og Viðey eru komnar inn. Í dag förum við í sund og á morgun förum við í Elliðaárdalinn. Þar ætlum við að grilla pylsur í boði Álftabæjar. Svo er heimadagur á föstudag.