1.9.2010
Íþróttaskólinn
Sæl verið þið
Íþróttaskólinn hjá 1.bekk byrjar fimmtudaginn 2.september en hjá 2.bekk á föstudaginn 3.september.
Við þurfum að skipta 1.bekk í þrjá hópa og er skiptingin eftirfarandi :
[ MEIRA ]
30.8.2010
Frístundarútur
Þróttur og Ármann, í samstarfi við frístundaheimilin í Vogaskóla, Langholtsskóla og Laugarnesskóla, hafa ákveðið að bjóða upp á rútuferðir frá frístundaheimilunum og á æfingar sem byrja fyrir 16:30 á daginn. Þetta verður foreldrum að kostnaðarlausu.
Vonumst við til þess að þessi þjónusta mælist vel fyrir hjá foreldrum og forráðamönnum og að þeir nýti sér þessa þjónustu.
Börnunum verður ekki ekið tilbaka í frístundaheimilin að æfingu lokinni og því þurfa foreldrar að sækja þau að æfingu lokinni.
Fyrst og fremst er þessi þjónusta í boði fyrir yngstu bekki grunnskóla, en eldri börnum er velkomið að hoppa með í rútuna svo lengi sem sætapláss leyfir.
Rútuferðirnar verða á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum, tvisvar á dag.
[ MEIRA ]