3.9.2010
Staða biðlista og ráðningamála í Laugarseli
Eins og foreldrum er kunnugt um hefur gengið brösulega að ráða fólk þetta haustið og viljum við byrja á að þakka foreldrum kærlega fyrir sýndan skilning og þolinmæði.
Þrátt fyrir brösulega byrjun sjáum við fram á bjartari tíma hjá okkur í Laugarseli því hægt og rólega saxast á biðlistann okkar. Við væntum þess að biðlistinn styttist enn frekar í næstu viku og munu einhverjir foreldrar vonandi eiga von á símtölum frá okkur strax í byrjun næstu viku.
Foreldrar meiga svo eiga von á að fá senda í pósti formlega dagskrá Laugarsels þegar tekist hefur fullmanna frístundaheimilið og búið hefur verið að móta klúbba og annað skemmtilegt. Einnig munum við setja dagskrárnar hér á heimasíðuna okkar.
Foreldrar munu einnig fá sent frístundadagatal þar sem hægt er að sjá heila daga í vetur og annað því um líkt.
Með kærri kveðju og von um ánægjulega helgi,
Kristín og Sædís
31.8.2010
Frístundarúta í Laugarból
Eftirfarandi er tilkynning frá íþróttafélögunum Þrótti og Ármanni:
Þróttur og Ármann, í samstarfi við frístundaheimilin í Vogaskóla, Langholtsskóla og Laugarnesskóla, hafa ákveðið að bjóða upp á rútuferðir frá frístundaheimilunum og á æfingar sem byrja fyrir 16:30 á daginn. Þetta verður foreldrum að kostnaðarlausu. Það þarf að skrá börnin sérstaklega í þessar rútuferðir og er það gert hjá íþróttafélögunum sjálfum.
[ MEIRA ]
17.8.2010
Vetrarfrístund (6-9 ára börn)
Nú er síðasta vika sumarfrístunda hafin.
Vetrarfrístund hefst svo næstkomandi þriðjudag, 24. ágúst.
Verið er að vinna í innra skipulagi og starfsmannaráðningum fyrir komandi vetur.
Ánægjulegt er að segja frá því að um 700 umsóknir hafa borist á frístundaheimili Kringlumýrar fyrir komandi vetur.
Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að samþykkja umsóknir samhliða því sem starfsmenn eru ráðnir til starfa.
Frístundaheimilin í okkar hverfi eru:
Álftabær við Álftamýraskóla (Linda, GSM: 664-7611)
Sólbúar við Breiðagerðisskóla (Valdi, GSM: 664-7612)
Neðstaland við Fossvogsskóla (Fríða Björk, GSM: 664-7613)
Krakkakot við Hvassaleitisskóla (Biddý, GSM: 664-7670)
Glaðheimar við Langholtsskóla (Mýa, GSM: 664-7617)
Lagarsel við Laugarnesskóla (Kristín, GSM 664-7618 & Sædís, GSM: 664-7655)
Vogasel við Vogaskóla (Rakel, GSM: 664-7619)
Sé frekari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra viðkomandi frístundaheimilis eða deildarstjóra barnasviðs.
Með kærri kveðju
Inga Björk
Deildastjóri barnasviðs