6. og 7. bekkur

5. -  7. bekkur í Tónabæ

 

Eftir áramót verður félagsmiðstöðin Tónabær opin á þriðjudögum eftir skóla (eða frá kl. 14:00) fyrir krakka í 5. - 7. bekk í Álftamýrar- og Hvassaleitisskóla til kl. 16:30. Um er að ræða opið hús og smiðjur fyrir þessar bekkjardeildir. Nokkur breyting hefur orðið á starfinu núna eftir áramót á þann hátt að núna bjóðum við 5. bekkinga velkomna annan hvern þriðjudag ásamt því að bjóða upp á stutt námskeið eða smiðjur fyrir allar bekkjardeildirnar.

 

Annan hvern þriðjudag verður opið hús fyrir 6. og 7. bekk með skipulagðri dagskrá. Ekki þarf að skrá krakkana sérstaklega til þátttöku í það heldur er öllum frjálst og koma og fara eins og þeim hentar á þessum tíma.

 

Hina þriðjudagana í mánuðinum verða stutt námskeið eða smiðjur fyrir krakkana. Þá verður sér smiðja fyrir 5. bekk og önnur fyrir 6. og 7. bekk. Í það þurfa krakkarnir að skrá sig sérstaklega en það munu þau geta gert í skólanum samdægurs í frímínútum. Einungis komast 16 til 20 krakkar að í hverja smiðju en fjöldinn fer eftir smiðjunum hverju sinni.

 

Starfið er liður í því að kynna starf félagsmiðstöðvarinnar og það sem þar fer fram fyrir tilvonandi unglingum í hverfinu. Starfsmenn Tónabæjar hafa umsjón með starfinu og skipuleggja dagskrá í samstarfi við krakkana og verða krökkunum innan handar í því sem í boði er í félagsmiðstöðinni. Þar er t.d billjardborð, borðtennisborð, spil, föndurdót, bandývöllur, dansgólf, leikjatölvur, sjónvarp, videó, dvd, o.fl. Athugið að ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku.

 

Vonumst til að sjá sem flesta!

 
 
Kv. Sunna Reynisdóttir - Verkefnastjóri
 
Vilhjálmur Ari Gunnarsson - frístundaleiðbeinandi
 
 

FERÐALÖG