Fréttir

Sápubandý

Útileikir!

Opnunarkveld!

Fáránleikar í Nauthólsvík

Klifur í Gufunesbæ

Sápubandý og vatnsstríð

Sundferð í Breiðholtslaug

Sumaropnun

Löggu og bófakvöld

Tónabæjarbíó

Undanfarna viku þá hafa félagsmiðstöðvarnar í hverfinu (Buskinn, Bústaðir, Laugó, Tónabær og Þróttheimar) staðið að íþróttaviku fyrir allar félagsmiðstöðvarnar fimm, þar sem keppt er í hinum ýmsu íþróttagreinum.
 
Á mánudagskvöldið var meðal annars keppt í human fussball, langhlaupi, spretthlaupi, blindrabolta, skák og körfubolta. Á miðvikudaginn var keppt í handbolta, pílukasti, botsja, bandý, pool og kraftakeppni og í kvöld föstudag verður keppt í badminton, borðtennis og fótbolta.
 
Loksslútt vikunnar verður síðan haldið í Laugardalslauginni í kvöld og byrjar sundlaugarpartýið kl. 20:00. Krakkarnir mæta sjálf í sundlaugina og borga 110 krónur ofan í laugina. Partýið klárast milli kl. 22 og 22:30 en þá verður boðið upp á rútur í Tónabæ, Bústaði og Buskann.
 
Mikil stemmning hefur verið vegna þessa viðburðar og vonum við að stemmningin verði áfram góð í kvöld.

Neonball

Actionarykvöld

Brandarakeppni og Viltu vinna hundraðkall?

Poolmót

Samfés

Jæja jæja þá styttist aldeilis í Samfés hátíðina...

Þið sem eruð að fara á Samfés eigið að koma í Tónabæ í síðasta lagi kl. 17:15 á föstudaginn.

Mætið södd og á þægilegum skóm.

Sjáumst hress

Bíókvöld

Strákakvöld

Pönnukökukvöld

10. bekkjarkvöld

Miðasala á Samfés

Draugahús

Keppniskeppz

Kosningakvöld

Álftó/Hvassókvöld

Söngkeppni

Tónabæjarbolti

Rock band keppni

Spil og bíó

Blindrabolti

skautaferð

Söngkeppni Kringlumýrar

Leikrit

Alíaskvöld

Bústaðir koma í heimsókn

Þrettándabrenna

Dótadagur

Mission impossible

Gistinótt

Jólabingó

Fífamót

Jólaföndur og brjóstsykursgerð

Pizzakvöld

Stelpukvöld

Grímugerð

Hvassókvöld

9. bekkjarkvöld

Fússballmót

Ljótufatakvöld og karaoke

Félagsmiðstöðvadagurinn

Í gær var félagsmiðstöðvadagurinn og því opið hús hjá okkur í Tónabæ. Það var gaman að sjá hversu margir foreldrar mættu og viljum við þakka þeim kærlega fyrir komuna. Þetta var skemmtileg kvöldstund sem að við áttum saman og vonum við að þær verði mun fleiri í framtíðinni :). Bestu kveðjur frá starfsfólki Tónabæjar.

Félagsmiðstöðvadagurinn

Miðvikudaginn 4. nóvember standa félagsmiðstöðvar ÍTR fyrir félagsmiðstöðvadeginum í Reykjavík. Dagurinn er samstarfsverkefni þeirra 23 félagsmiðstöðva sem starfa í Reykjavík og verða allar félagsmiðstöðvarnar opnar fyrir gesti og gangandi.

 

Félagsmiðstöðvadagurinn er nú haldinn í sjötta sinn. Markmið hans er að gefa áhugasömum færi á að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi, kynnast því sem þar fer fram, unglingunum í hverfinu og þeim viðfangsefnum sem þeir fást við með stuðningi starfsmanna félagsmiðstöðvarinnar.

 

Í Tónabæ verður opið fyrir foreldra og fjölskyldu nemenda Hvassaleitisskóla milli kl. 17 og 19 og fyrir foreldra og fjölskyldu Áftamýrarskóla milli kl. 20 og 22.

 

Þar munu unglingar og starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar taka vel á móti gestum, kynna starfsemina og gera heimsókn í félagsmiðstöðina að ánægjulegri kvöldstund.

Varúlfskvöld

Sundlaugarpartý

Borðtennismót

Bökunarkeppnin

 
Bökunarkeppnin á föstudaginn heppnaðist ekkert smá vel og var þvílíkt skemmtileg. Það mættu yfir 100 krakkar til okkar og það voru 23 kökur með í keppninni. Það er greinilegt að krakkarnir lögðu mikinn metnað í kökurnar sínar enda voru þær fyrsta flokks. Starfsmenn Tónabæjar voru dómarar í keppninni og var keppnin mjög hörð. Verðlaun voru gefin fyrir flottust og bestu kökuna ásamt þeirri frumlegustu. Biggi, Baddi og Benni úr Álftó voru með flottustu kökuna, Stefán Þór úr Hvassó var með bestu kökuna, annað árið í röð hjá honum og Siggi Dagur og Logi voru með frumlegustu kökuna.

 

Bökunarkeppni!

Ljósmyndamaraþon

Jungle Speed keppni

Hvassókvöld

Fótboltamót

Sundlaugarpartýið

Sundlaugarpartýið í Sundhöllinni á föstudaginn heppnaðist ekkert smá vel. Það mættu yfir 100 unglingar og hressleikinn var í fyrirrúmi. Nokkrir unglingar úr félagsmiðstöðunum þeyttu skífum og diskóljósin voru stillt í botn.
Unglingar og starfsmenn æfðu dýfingar af fullum krafti og voru sumir með alveg þvílíka takta. Einnig voru nokkrar einakrónur á botni laugarinnar og á vissum tímapunkti var unglingunum tilkynnt um veru þeirra á botninum og þeir sem fundu þær fengu verðlaun.
Veðrið var ekki það besta en í svona vondu veðri hvað er þá betra en að fara í sund í innilaug og sleppa fram af sér beislinu.
Kæru vinir takk fyrir frábært kvöld!
Starfsmenn Tónabæjar

Ullarsokkabandy

Öðruvísi leikjakvöld

Spilakvöld

Sirkuskvöld

Amazing Race

Á föstudaginn síðasta héldum við Amazing Race keppni Tónabæjar. Kepptu 15 lið með rúmlega 50 keppendum. Þurftu keppendur að fara út um alla borg og leysa hinar ýmsu þrautir, meðal annars þurftu þeir að synda 100 metra og renna sér í vatnsrennibrautinni í sundlauginni í Breiðholti, drekka ógeðisdrykk, finna borðtenniskúlur í boltalandi Sólbúa og finna bleikt svín í kringlunni. Var keppnin hörð og ótrúlega spennandi.
Fyrstir í mark voru tvíburarnir Biggi og Baddi úr Álftamýrarskóla ásamt félaga sínum Benna sem einnig er í 9. bekk í Álftamýrarskóla. Ekki munaði þó miklu á þeim og næstu tveimur liðum heldur aðeins nokkrum mínútum. Fyrsta stelpuliðið var þriðja liðið í keppninni en það voru þær Áslaug, Eydís og Elva allar úr 10. bekk í Álftamýrarskóla. Fyrsta strákaliðið og stelpuliðið fengu verðlaun að keppni lokinni, leikhúsmiða fyrir tvo í þjóðleikhúsið, fyrsta liðið fékk að auki einn bíómiða á mann.
Keppnin heppnaðist í alla staði mjög vel og erum við öll ánægð með bæði þátttöku krakkana og keppnina sjálfa.

Amazing Race!

Meistaradeildin

Bíókvöld!

Keila

Lokað vegna starfsdags!

Hæhæ
 
Það verður lokað hjá okkur í kvöld, föstudaginn 11. september vegna starfsdags!
 
Við opnum svo aftur kl 14:00 á mánudaginn! sjáumst fersk þá ;)
 
kv. Tónó

Stensl og hárspangagerð!

8. bekkjarkvöld

Street ball mót

Opnunarkvöld í Tónabæ

Jiiiibbbbbbíííííí!!! Nú opnum við aftur!

Hæhó!
 
Við í Tónabæ höfum opnað aftur eftir gott sumarfrí!
 
Í vikunni verður opið á miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn á daginn og það sem meira er, fyrsta kvöldopnunin verður á FÖSTUDAGINN!!! meira um hana síðar í vikunni...
 
Látið sjá ykkur
 
Kv. Tónó
 
PS. opnunartímar fyrir veturinn 2009-2010 eru komnir hér til hliðar :)

FERÐALÖG