Íþróttavika 23. - 27. mars 2009

Vikuna 23.-27. mars 2009 er áætlað að vera með íþróttaviku í hverfinu þar sem allir skólarnir keppa við hvorn annan í hinum ýmsu íþróttagreinum.
 
Skólarnir sem keppa fyrir hönd sinna
félagsmiðstöðva eru:
Álftamýrarskóli (Tónabær)
Hvassaleitisskóli (Tónabær)
Langholtsskóli (Þróttheimar)
Laugarlækjaskóli (Laugó)
Réttarholtsskóli (Bústaðir)
Vogaskóli (Buskinn)
 
Keppt verður í 12 greinum og eru þær eftirfarandi:
 
Ullarsokkabandý - Tónabær kl. 17:00
3 í liði, lið verður að innihalda 1 stelpu og 1 strák
Keppt verður í einum riðli, allir keppa við alla. Leikirnir verða 7. min og efstu tvö sætin keppa úrslitaleik í endan. Sigur gefur 3. stig og jafntefli 1. stig. Ef jafnt verður í úrslitaleiknum verður bráðabani, liðið sem er á undan að skora vinnur.
 
Pílukast - Tónabær kl. 17:00
2 úr hverjum skóla taka þátt

Keppt verður í tveimur riðlum, einn úr hverjum skóla í hvorum riðli. Sá sem er á undan niður úr 501 stigi vinnur. Þrír einstaklingar komast áfram úr hverjum riðli og keppa svo í kross við hinn riðilinn. Þaðan komast svo þrír einstaklingar sem keppa allir innbirðis um þrjú efstu sætin.

Þar sem að það eru tveir úr hverjum skóla sem keppa í þessari grein, þá gildir betri árangurinn í sæti.

 
Botsja - Tónabær kl. 17:00
3 úr hverjum skóla taka þátt
Keppt verður í einum riðli. Allir keppa við alla. Kastað er lítilli kúlu inn á völlinn sem er lítið “skotmark”. Hvert lið fær svo þrjár tilraunir til þess að komast eins nálægt skotmarkinu og hægt er. Það lið sem endar næst skotmarkinu vinnur lotuna. Hvert lið þarf að vinna 2 lotur til að vinna leikinn.
 
Human fússball - Tónabær kl. 19:30
9 í liði, markmaður, 2 varnarmenn, 3 sóknarmenn, 3 miðjumenn
Keppt verður í einum riðli, allir keppa við alla. Sigur gefur 3. stig og jafntefli 1. stig. Leikirnir verða 8. min
 
 Street Ball - Tónabær kl. 19:30
3 á móti 3, mega vera 5 í liði en aðeins 3 inná í einu
Keppt verður í einum riðli, allir keppa við alla. Leikirnir verða 8. min og efstu tvö sætin keppa úrslitaleik í endan. Sigur gefur 2. stig. Ef lið eru jöfn að leik loknum er bráðabani og það lið sem er á undan að setja boltan í körfuna vinnur.
 
9Ball - Bústaðir kl. 17:00
2 úr hverjum skóla taka þátt

Keppt verður í tveimur riðlum, einn úr hverjum skóla í hvorum riðli. Þrír einstaklingar komast áfram úr hverjum riðli og keppa svo í kross við hinn riðilinn. Þaðan komast svo þrír einstaklingar áfram sem keppa allir innbirðis um þrjú efstu sætin. Kúlunum er skotið niður eftir númeraröð. Til að vinna leik verður einstaklingur að skjóta niður “níunni”, skiptir engu máli hversu margar kúlur hinn keppandinn hefur sett ofan í, sá sem skýtur “níunni” ofan í hann vinnur.

Þar sem að það eru tveir úr hverjum skóla sem keppa í þessari grein, þá gildir betri árangurinn í sæti.
 
Brennó - Bústaðir kl. 17:00
6 í liði, lið verður að innihalda 2 stelpur og 2 stráka

Keppt verður í einum riðli. Allir keppa við alla. Kóngurinn hefur tvö líf. Annars þekkja allir reglur Brennó.

 
Blindrabolti - Bústaðir kl. 17:00
3 í liði, lið verður að innihalda 1 stelpu og 1 strák
Keppt verður í einum riðli, allir keppa við alla. Leikirnir verða 5. min og efstu efstu tvö sætin keppa úrslitaleik. Sigur geftur 2. stig. Ef leikirnir enda jafnir verður gripið til bráðabana og það lið sem er á undan að skora vinnur.
 
Kraftakeppni - Bústaðir kl. 19:30
2 strákar og 2 stelpur, keppt verður í stráka- og stelpuflokki

1. grein: Armbeygjur á tíma...    40 stk hjá strákum, 25 stk hjá stelpum

2. grein: Tunnuburður. Keppendur bera tunnur, eða þunga hluti frá staðar A til B svona 5-6 ferðir.  

3. grein: Drumbakast. Keppendur kasta trédrumb og vegalengdin er mæld.

4. grein: Bílaýtan. Keppendur ýta bíl á undan sér 40m á tíma.

5. grein: Jark. Keppendur halda á lóðum í vinstri og hægri hendi og þeim haldið út til hliðar eins lengi og viðkomandi getur.

6. grein: Dauðagangan. Gengin er ákveðin vegalend með vatnstanka á tíma.

 
Badminton - TBR húsið kl. 16:50
2 úr hverjum skóla, keppt verður í tvíliðaleik
Útsláttarkeppni. Lið verður að vinna tvær lotur til þess að vinna leikinn. Þrjú lið komast áfram að lokinni fyrstu umferð og þau þrjú lið keppa öll innbirðis um þrjú efstu sætin. Hver lota er upp í 21 stig og fæst stig í hverri uppgjöf, ekki verður keppt um uppgjafarréttinn
 
Borðtennis - TBR húsið kl. 16:50
2 úr hverjum skóla taka þátt

Keppt verður í tveimur riðlum, einn úr hverjum skóla í hvorum riðli. Þrír einstaklingar komast áfram úr hverjum riðli og keppa svo í kross við hinn riðilinn. Þaðan komast svo þrír einstaklingar sem keppa allir innbirðis um þrjú efstu sætin. Til að vinna leik verður einstaklingur að vinna tvö sett sem eru upp í 11. stig.

Þar sem að það eru tveir úr hverjum skóla sem keppa í þessari grein, þá gildir betri árangurinn í sæti.

 
Fótboltamót - Laugarnesskóli kl. 18:00
7 í liði, 5 inná í einu, lið verður að innihalda 2 stelpur og 2 stráka
Keppt verður í einum riðli, allir keppa við alla. Leikirnir verða 8. min og efstu tvö sætin keppa úrslitaleik í endan. Sigur gefur 3. stig og jafntefli 1. stig. Ef jafnt verður í úrslitaleiknum verður gripið til vítaspyrnukeppni.
 
Í lok íþróttavikunnar verður svo SUNDLAUGARPARTÝ
í Laugardalslaug!
 
Fyrir hverja grein fást 3. stig fyrir fyrsta sæti, 2. stig fyrir annað sæti og 1. stig fyrir þriðja sæti
 
Sá skóli (félagsmiðstöð) sem er með flestu stigin í lok vikunnar vinnur!
 
Íþróttavikan fer fram á þremur stöðum í hverfinu, Tónabæ, Bústöðum og Laugardal
 
Mánudaginn 23. mars verðum við í Tónabæ
Miðvikudaginn 25. mars verðum við í Bústöðum
Föstudaginn 27. mars verðum við í Laugardalnum
(TBR húsinu, Lauganesskóla og Laugardalslaug)
 
Ef eitthvað er óljóst þá er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá þinni félagsmiðstöð.
 
Hér hægra megin á síðunni er svo hægt að nálgast dagskrá íþróttavikunnar
 
 

FERÐALÖG