STÍLL 2009
Stíll 2009
Stíll er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun, og í ár verður Stíll 2009 sú níunda af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés. Keppnin verður haldin laugardaginn 21.nóvember,
Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel.
*Undankeppni fer fram í Tónabæ ef fleiri en eitt lið vill taka þátt!
Keppnin í ár: Þema keppninnar í ár er Endurvinnsla
og eiga liðin að vinna út frá því. Nú er um að gera að láta hugmyndaflugið njóta sín.
Mæting á aðalkeppnina:
Liðin mæta til undirbúnings á keppnisdag og hefst keppnin klukkustund síðar, og stendur í tvær klukkustundir.
Af því búnu hefst sýning frá liðum félagsmiðsstöðvanna og í kjölfarið verða úrslitin kynnt.
Á meðan liðin gera sig klár verða ýmis skemmtiatriði á sviði, m.a. tískusýningar, söngatriði frá unglingum og ýmsar þekktar hljómsveitir spila órafmagnaðar.
Verðlaun:
Veitt verða verðlaun fyrir efstu fimm sætin, auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir hár, förðun og fatahönnun, meðal verðlauna er farandstytta.
Veitt verða aukaverðlaun í ár, en það eru verðlaun fyrir vinnu á möppu.
Mappan er vinnumappa hvers hóps, þar sem sýnt er vinnuferli á flík, myndum af flík, hár og förðun, auk útskýringa. Hvað efni er verið að nýta? Hvaða hugmynd er á bakvið flíkina?
Dómarar styðjast við möppuna þegar þeir kjósa í úrslit. Því betri sem mappan er, því betra er fyrir dómara.